Bandarísk stjórnvöld ákærðu í dag stjórnanda vogunarsjóðs og fimm aðra fyrir innherjasvik í tengslum við hlutabréfaviðskipti. Eru mennirnir grunaðir um að hafa hagnast um 20 milljónir dala með því að nýta sér innherjaupplýsingar í viðskiptum með hlutabréf Google, Hilton Hotels Corp. og fleiri fyrirtækja.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið lagði í dag fram ákæru á hendur Raj Rajaratnam, forstjóra Galleon Management vogunarsjóðsins. Rajaratnam er í 559. sæti á lista tímaritsins Forbes yfir ríkasta fólk heims en eignir hans eru metnar á 1,3 milljarða dala.
Danielle Chiesi og Mark Kurkland, sem störfuðu hjá New Castle vogunarsjóði bankans Bear Stearns, Rajiv Goel starfsmaður Intel Capital, Anil Kumar starfsmaður McKinsey & Co og Robert Moffat, aðstoðarforstjóri IBM, sættu einnig ákæru.
Að sögn bandarískra stjórnvalda er þetta í fyrsta skipti, sem símhlerunum að undangengnum dómsúrskurðum hefur verið beitt til að afla upplýsinga um innherjasvik á Wall Street.