Landic selur starfsemi í Danmörku

Svipmynd frá Kaupmannahöfn.
Svipmynd frá Kaupmannahöfn.

Fasteignafélagið Landic Property hefur skrifað undir samning um sölu á Atlas I
fasteignasafninu (Landic Property Denmark A/S) til danska fasteignafélagsins Jeudan A/S. 

Fasteignasafnið samanstendur af 31 fasteign sem flestar eru staðsettar í miðborg Kaupmannahafnar. Söluverðið erum 2 milljarðar danskra króna, 49,7 milljarða íslenskra króna, sem samsvarar bókfærðu verði fasteignanna, að því er segir í tilkynningu.

Þar kemur fram að meðal fasteigna eru byggingar eins og Tietgen húsið og ØK bygginguna.

Viðar Þorkelsson, forstjóri Landic Property segir í tilkynningu: „Ég er ánægður með þennan samning sem við höfum gert við Jeudan og tel að verðið sé vel ásættanlegt miða við núverandi markaðsaðstæður. Þessi samningur er
mikilvægur áfangi í endurskipulagningu Landic Property sem í framhaldinu mun einbeita sér að rekstri fasteigna á Íslandi. Endurskipulagningin á íslenska eignasafninu gengur vel og er því sem næst lokið.”

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK