Fjölgar á vanskilaskrá

Frá ársbyrjun 2008 til 15. október í ár fjölgaði einstaklingum á vanskilaskrá um 25% eða sem nemur um 4 þúsund einstaklingum. Um miðjan október voru tæplega 20 þúsund einstaklingar 18 ára og eldri skráðir á vanskilaskrá sem jafngildir um 6,7% af öllum fjárráða einstaklingum á landinu.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka, sem vitnar í úttekt Creditinfo um fjárhagslega stöðu heimilanna.  Vanskil eru algengust meðal fólks á aldrinum 30-49 ára en um 9% þeirra voru í vanskilum um miðjan október.

Greining Íslandsbanka segir, að þrátt fyrir þær miklu efnahagslegu breytingar sem hér hafi orðið á undanförnum misserum hafi fjölgun á vanskilaskrá verið merkilega lítil. Á síðustu 5 árum hafi hlutfall fjárráða einstaklinga á vanskilaskrá ekki farið niður fyrir 5% þrátt fyrir það góðæri sem þá ríkti. Megi ætla að hlutfallið nú væri hærra ef ekki væri fyrir þau úrræði sem  heimilum hefur verið boðið til að mæta greiðsluerfiðleikum, þ.e.a.s. frystingu lána og greiðslujöfnun. Það sé ekki síst af þessum sökum sem gjaldþrotum einstaklinga hefur fækkað um 55 tilfelli á milli ára, en á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa alls 78 einstaklingar orðið gjaldþrota samanborið við 133 á sama tímabili í fyrra. 

Í Morgunkorni segir, að meirihluti íslenskra heimila búi þó enn við mjög gott lánshæfismat. Með fyrirhuguðum aðgerðum í lánamálum heimilanna og miðað við horfur í efnahagsmálum líkt og nú séu verði flestir einstaklingar færir um að standa í skilum án þess að lenda í alvarlegum fjárhagserfiðleikum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK