Tap á rekstri Nýherja á þriðja ársfjórðungi nam 107 milljónum króna en var 258 milljónir árið á undan. Stjórn félagsins hefur ákveðið að hefja undirbúning að útgáfu og sölu á nýju hlutafé til að styrkja fjárhagsstöðuna.
Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, segir í tilkynningu, að viðsnúningur hafi orðið á rekstri Nýherja í þriðja ársfjórðungi frá því sem verið hafi síðustu þrjá ársfjórðunga. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagskostnað nam 107 milljónum og segir Þórður að hann nálgast að vera áþekkur því sem var í öðrum og þriðja ársfjórðungi 2008.
Segir Þórður að sala á búnaði og lausnum á Íslandi hafi aukist eftir því sem leið á tímabilið. Þá hafi Nýherji lagt þunga áherslu á að lækka rekstarkostnað á árinu sem hafi skilað sér í bættri afkomu.
Sölutekjur Nýherja nánu 10,3 milljörðum króna fyrstu níu mánuði ársins samanborið við 10,9 milljarða á síðasta ári. Það sem af er árinu nemur tap fyrirtækisins 984 milljónum króna samanborið við 694 milljóna tap á sama tíma á síðasta ári. Heildartap, eftir að rekstrarliðir hafa verið færðir á eigið fé, nemur 178 milljónum króna samanborið vioð 498,6 milljónir á sama tíma á síðasta ári.