Bandaríska fjármálaeftirlitið lokaði í gær sjö bönkum, þar á meðal þremur þremur litlum bönkum í Flórída. Eru þar með orðnir yfir eitthundrað bankarnir sem hrunið hafa í Bandaríkjunum af völdum fjármálakreppunnar.
Áætlað er að kostnaður hins bandaríska tryggingasjóðs innstæðueigenda vegna fallinna banka sé orðinn 25 milljarðar dollara í ár. Fleiri bönkum hefur verið lokað á árinu í Bandaríkjunum en á nokkru ári frá 1992. Þá fóru 181 banki á hausinn en í ár eru þeirorðnir 106.
Sjóðurinn tryggir innstæður sparifjáreigenda fyrir allt að 250.000 dollara á hvern reikning.
Talið er að ekki sjái fyrir endann í þessum efnum og fleiri bankar eigi eftir að leggja upp laupana fyrir áramót vegna taps á lánastarfsemi.
Margir hinna föllnu banka eru smáir að sniðum, nokkurs konar hverfisbankar eða sparisjóðir sem liðu fyrir að smáfyrirtæki og einstaklingar endurgreiddu ekki lán eftir að fjármálakreppan skall á.