Gjaldþrotum fjölgar mikið

Í september 2009 voru 86 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 52 fyrirtæki í september 2008, sem jafngildir rúmlega 65% fjölgun milli ára.

Hagstofan birti í morgun nýjar tölur um gjaldþrot fyrirtækja. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot, eða 29, í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu 9 mánuði ársins 2009 er fjöldi gjaldþrota 641 en fyrstu níu mánuði ársins 2008 voru 522 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta sem jafngildir tæplega 23% aukningu milli ára.

Þróun gjaldþrota fyrirtækja. Kortið er tekið af vef Hagstofunnar.
Þróun gjaldþrota fyrirtækja. Kortið er tekið af vef Hagstofunnar.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK