Ríkissjóður Íslands greiðir hæstu opinberu gjöldin í Reykjavík samkvæmt álagningu skattstjórans þar. Ríkissjóður greiðir 6,1 milljarð króna í opinber gjöld, Exista Trading greiðir 1,52 milljarða og Reykjavíkurborg 1,51 milljarð samkvæmt álagningarskránni.
Gjöldin sem ríkissjóður og Reykjavíkurborg greiða eru tryggingagjald en gjöld Exista Trading eru vegna tekjuskatts.
Alls greiða lögaðilar í Reykjavík 28,6 milljarða króna í tryggingagjald og 25 milljarða króna í tekjuskatt fyrir árið 2008. Þá greiða þau 324 milljónir í fjármagnstekjuskatt og 252 milljónir í útvarpsgjald. Alls greiða lögaðilar 54,7 milljónir króna í opinber gjöld.