Lárus Ásgeirsson ráðinn forstjóri Sjóvar

Lárus Ásgeirsson.
Lárus Ásgeirsson.

Stjórn Sjóvá-Almennra Trygginga hf. hefur ráðið  Lárus Ásgeirsson sem forstjóra félagsins frá 9. nóvember nk. Lárus tekur við af Herði Arnarsyni sem ráðinn hefur verið forstjóri Landsvirkjunar, að því er fram kemur í tilkynningu.

Lárus er vélaverkfræðingur að mennt frá Íslandi og Bandaríkjunum. Hann starfaði hjá Marel frá 1991 m.a. sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðsmála, forstjóri Scanvaegt International í Danmörku í eigu Marel, framkvæmdastjóri erlendra sölu og þjónustufyrirtækja Marel í yfir 20 löndum og staðgengill forstjóra. Lárus er kvæntur Sigurveigu Þóru Sigurðardóttur lækni og eiga þau tvo syni.

Umfangsmikilli endurskipulagningu Sjóvá-Almennra Trygginga lauk í síðasta mánuði með flutningi á vátryggingastofni félagsins yfir í nýtt tryggingafélag með traustan rekstur. Með endurskipulagningunni tókst að tryggja að fullu hagsmuni viðskiptavina félagsins. Megin áhersla félagsins verður á almenna tryggingastarfsemi með þjónustu við viðskiptavini að leiðarljósi og hagkvæmni í rekstri.

 Eigendur nýs félags eru SAT eignarhaldsfélag hf. (sem er í eigu Glitnis banka hf.) og Íslandsbanki hf. Stjórn nýs vátryggingafélags skipa Heimir V. Haraldsson stjórnarformaður, Þórólfur Jónsson, Erna Gísladóttir, Kristján Ragnarsson og Þórhildur Ólöf Helgadóttir.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK