Verð á hráolíu lækkaði hratt eftir að fréttir voru birtar af miklu atvinnuleysi í Bandaríkjunum í dag. Fyrr um daginn hafði verðið á tunnunni farið yfir áttatíu dali. Lokaverð á hráolíu til afhendingar í desember er 75,87 dalir tunnan á Nymex-markaðnum í New York. Er það lækkun um 2,12 dali tunnan.