Aflaverðmæti eykst milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 75 milljörðum króna á fyrstu átta mánuðum ársins samanborið við rúma 63 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 12 milljarða eða 19% á milli ára, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.

Aflaverðmæti í ágústmánuði nam 10 milljörðum króna miðað við 9 milljarða í ágúst 2008.

Aflaverðmæti botnfisks var í lok ágúst orðið 52 milljarðar króna á árinu sem er aukning um 16,5% frá sama tíma í fyrra þegar aflaverðmætið nam tæpum 45 milljörðum. Verðmæti þorskafla var um 23 milljarðar og jókst um 9,5% frá árinu 2008. Aflaverðmæti ýsu nam um 10 milljörðum og stóð nokkurn veginn í stað milli ára. Verðmæti karfaaflans nam 6 milljörðum, sem er 34,7% aukning frá fyrstu átta mánuðum ársins 2008, og verðmæti ufsaaflans jókst um 5,1% milli ára í 4,2 milljarða króna. Verðmæti annars botnfisksafla jókst í heild um 31,9% miðað við fyrstu átta mánuði ársins 2008.

Verðmæti flatfiskafla nam rúmum 7 milljörðum króna í janúar til ágúst 2009 sem er 74,5% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla jókst um 11% milli ára og nam rúmum 15 milljörðum króna frá janúar til ágúst 2009. Munar þar mestu um verðmæti síldarafla sem nam 7,2 milljörðum samanborið við 4,7 milljarða í fyrra og makríl að verðmæti 4,2 milljarðar samanborið við 3 milljarða 2008.

Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu innanlands nam um 29 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins og jókst um 14% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands jókst um 9,9% milli ára og nam 9,5 milljörðum króna. Aflaverðmæti sjófrystingar nam 26 milljörðum, samanborið við tæpa 20 milljarða árið áður. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam um 8,8 milljörðum, sem er 17,2% aukning miðað við tímabilið janúar til ágúst 2008.

Vefur Hagstofunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK