Nýja-Kaupþing neitar Eik um skilmálabreytingu

Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri Eikar fasteignafélags
Garðar Hannes Friðjónsson forstjóri Eikar fasteignafélags mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Einn lánardrottinn fasteignafélagsins Eikar, Nýja-Kaupþing, hefur synjað félaginu um skilmálabreytingu en frá því að íslensku bankarnir voru teknir yfir af Fjármálaeftirlitinu hefur Eik fasteignafélag hf. átt í viðræðum við lánadrottna sína um fjárhagsstöðu félagsins.

Eru forsvarsmenn Eikar ósáttir við þessa ákvörðun Kaupþings og telja bankann vera að að brjóta eigin verklagsreglur, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.

Markmið viðræðnanna hefur verið að leysa úr þungri greiðslubyrði félagsins, í kjölfar breyttrar stöðu á íslenskum fasteignamarkaði, að því er segir í tilkynningu frá fasteignafélaginu til Kauphallarinnar.

„Viðræður við einn helsta lánardrottin Eikar hafa nú siglt í strand, þar sem hann hefur synjað félaginu um skilmálabreytingu.

Óneitanlega kemur höfnun lánardrottins Eikar verulega á óvart, í ljósi þess að sjóðsstreymi félagsins stendur undir öllum vaxtagreiðslum þessa árs og næstu ára, skv. varfærinni áætlun. Þá er rétt að geta þess að bókfært eigið fé Eikar var yfir tveir milljarðar þann 30. júní s.l.," að því er segir í tilkynningu.

Geta ekki staðið við umsamdar afborganir

Sökum þeirrar lækkunar á leigu sem átt hefur sér stað á fasteignamarkaðinum, getur félagið ekki staðið við umsamdar afborganir.

„Í ljósi þess að félagið er með jákvætt sjóðsstreymi var talið víst að Eik uppfyllti helstu forsendur þess að greiðslubyrði félagsins yrði aðlöguð í samræmi við verklagsreglur lánastofnanna.

Höfnun stærsta lánardrottins félagsins setur því óneitanlega óveðtryggðar kröfur í félagið í uppnám, þar með talið þann skuldabréfaflokk sem skráður er í kauphöllinni. Á meðal eigenda slíkra krafna eru íslensku lífeyrissjóðirnir," samkvæmt tilkynningu.

Eignasafn metið á 19,7 milljarða króna

Rekstur félagsins gengur út á að kaupa og leigja fasteignir, en frá árinu 2006 dró verulega úr fasteignakaupum félagsins þar sem forsvarsmenn félagsins töldu að ekki væri inneign fyrir verðþróun markaðarins, eins og síðar kom á daginn, að því er forstjóri félagsins segir í tilkynningu.

„Félagið hefur jafnframt forðast erlendar lántökur og er meginþorri skulda félagsins í íslenskum krónum. Markvisst hefur verið unnið að því að draga úr rekstrarkostnaði félagsins á undanförnum misserum, en hafa ber í huga að stór hluti rekstrarkostnaðarins er fastur kostnaður sem á rætur sínar að rekja beint til rekstrarins."

Þegar horft er til 10 mánaða uppgjörs félagsins skilaði Eik inngreiddum tekjum upp á 61 milljón umfram áætlun eða upp á 4,6 prósent. Eignasafn Eikar var metið á 19,7 milljarða í sex mánaða uppgjöri 2009 og reiknaði félagið sér ekki viðskiptavild. Á sama tíma námu vaxtaberandi skuldir félagsins 17,4 milljörðum en 11,8 milljarðar hvíla hjá helsta lánadrottni Eikar.

„Í ljósi stöðunnar munu forsvarsmenn fyrirtækisins leita leiða, í samráði við eigendur félagsins, til þess að reyna að koma í veg það tjón sem kann að myndast hjá óveðtryggðum kröfuhöfum fari félagið í þrot," samkvæmt tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK