Verðbólgan á Íslandi lækkaði úr 15,3% í 13,8% á milli september og október síðastliðinn samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Af ríkjum evrópska efnahagssvæðisins er verðbólgan, sem fyrr, langmest hér á landi.
Verðbólgan mælist næst mest í Rúmeníu (4,3%), svo í Ungverjalandi (4,2%) og þar á eftir Póllandi (3,8%). Að meðaltali er verðbólgan nú um 0,5% meðal ríkja EES en innan evrusvæðisins, þar sem flest ríki eru nú að upplifa verðhjöðnun, hefur samræmd vísitala lækkað að meðaltali um 0,1% á síðustu tólf mánuðum, að því er segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
„Verðhjöðnun fer gjarnan
saman við samdrátt og vaxandi atvinnuleysi líkt og verið hefur víða í
Evrópu undanfarið. Mest er verðhjöðnunin á Írlandi, eða um 2,8%, en þar
í landi hefur verið mikill samdráttur í landsframleiðslu, auk þess sem
atvinnuleysi hefur farið hratt vaxandi. Það var Hagstofa
Evrópusambandsins sem birti tölur um þetta í gær."
Stærsti munur samræmdrar vísitölu neysluverðs og þeirrar vísitölu sem hér á landi er almennt notuð sem mælikvarði á verðbólgu, myndar viðmið verðbólgumarkmiðs Seðlabankans og Hagstofan reiknar er að íbúðaverð er ekki tekið beint inn í samræmdu vísitöluna, að því er segir í Morgunkorni.
Íbúðaverð hefur lækkað
nokkuð undanfarið og mælist verðbólgan því töluvert hærri samkvæmt
samræmdri vísitölu neysluverðs en hinni hefðbundnu. Samkvæmt þeirri
síðarnefndu mældist verðbólgan í október 9,7% sem er um 4,1
prósentustigum lægri en samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs.