Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hefur verið falið að annast ráðgjöf og formlegt ferli sem lýtur að mögulegri sölu á Steypustöðinni ehf., sem er í dag að fullu í eigu dótturfélags Íslandsbanka.
Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir, að söluferlið verði opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylli skilyrði til þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti, einstaklingum sem hafa verulegan fjárhagslegan styrk og viðeigandi þekkingu, auk fyrirtækja sem höfðu eiginfjárstöðu sem var hærri en sem nemur 300 milljónum í árslok 2008.
Seljandi áskilur sér þó rétt til þess að takmarka aðgang að söluferlinu í þeim tilvikum þegar fyrir hendi eru lagalegar takmarkanir á því að fjárfestir eignist ráðandi hlut í félaginu, svo sem vegna samkeppnisreglna.
Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu ásamt því að leggja fram nauðsynlegar upplýsingar og gögn sem staðfesta að ofangreind skilyrði séu uppfyllt. Framangreindu skal skilað til Fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka. Sölugögn verða afhent á tímabilinu 23.-27. nóvember með rafrænum hætti á netfang sem fjárfestar tilgreina í trúnaðaryfirlýsingu. Síðasti frestur til að skila inn trúnaðaryfirlýsingu er fimmtudagurinn 26. nóvember kl. 16.
Gert er ráð fyrir að skuldbindandi tilboðum með sérstaklega tilgreindum fyrirvörum sé skilað til Íslandsbanka fyrir klukkan 16 miðvikudaginn 2. desember.
Þeim fjárfestum sem leggja fram hæstu tilboðin og sýna fram á fjárhagslega burði til að standa við tilboðin, verður boðið til áframhaldandi þátttöku í söluferlinu. Fá þeir þá afhent drög að kaupsamningi ásamt aðgangi að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins. Endanlegum tilboðum án fyrirvara, ber að skila í síðasta lagi miðvikudaginn 16. desember fyrir kl. 16. Tilboð verða opnuð í viðurvist óháðs aðila.