Yngvi Örn Kristinsson, fyrrverandi forstöðumaður hagfræðisviðs Landsbankans, sem hefur gert kröfu í þrotabú bankans upp á 230 milljónir króna segir að ef kröfur hans verði samþykktar þá muni andvirði þeirra, að frádregnum sköttum, renna til velferðarmála. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Yngva Erni.
„Mikil umræða hefur spunnist um kröfur mínar og annarra fyrrverandi starfsmanna Landsbankans í þrotabú Landsbanka Íslands hf. Um er að ræða lögvarðar kröfur samkvæmt ráðningar-samningnum og eru þær aðallega til komnar vegna kauprétta sem voru í vanskilum af hálfu bankans frá árinu 2007. Óvíst er hvort þær verða samþykktar.
Ljóst er að ríkissjóðir Bretalands og Hollands munu fá um helming af eignum þrotabús Landsbankans. Falli ég og aðrir fyrrverandi starfsmenn frá okkar kröfum mun því helmingur þeirra renna til Breta og Hollendinga. Ég hef ekki áhuga á að styrkja þær þjóðir frekar en orðið er. Þá er ljóst að um helmingur af kröfum starfsmanna, verði þær samþykktar, munu renna til ríkissjóðs vegna tekjuskatta og enn meira ef tekið er tillit til óbeinna skatta. Ísland og íslenska ríkið mun því ekki skaðast af kröfum mínum í þrotabúið.
Sjálfur hef ég ákveðið að komi til þess að kröfur mínar verði samþykktar af þrotabúinu renni þær, að frádregnum sköttum, til velferðarmála," að því er segir í yfirlýsingu Yngva Arnar.