Húsleit embættis sérstaks saksóknara hjá sparisjóðonum Byr í dag, hefur engin áhrif á almenna starfsemi eða viðskiptavini Byrs sparisjóðs. Ennfremur hefur stjórn sjóðsins farið þess á leit við starfsfólk að það sýni embætti sérstaks saksóknara fullan samstarfsvilja og veiti því allar þær upplýsingar sem embættið kann að óska eftir. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá stjórninni.
Segir þar að léttir sé fyrir starfsfólk og stjórn að málið sé í farvegi og að það fólk vonist til að óvissu um málefni Exeter Holding ljúki sem fyrst.
Gerð var húsleit á vegum embættis sérstaks saksóknara í höfuðstöðvum Byrs í Borgartúni. Tilefni húsleitarinnar var skoðun embættisins á málefnum Exeter Holdings, einkahlutafélags sem keypti stofnbréf í Byr með láni frá sparisjóðnum.