Skuldir ríkissjóða landa heimsins mun aukast um 45%, 15,3 billjónir evra, á árunum 2007 til 2010 samkvæmt útreikningum matsfyrirtækisins Moody's.
Fram kemur í yfirlýsingu frá Jaime Reusche, sérfræðingi hjá Moody's, að þetta sé 100 sinnum meira en kostnaður af Marshall-áætlun Bandaríkjanna eftir síðari heimsstyrjöld þegar verðbólga hefur verið tekin með í reikninginn. Marshall-áætlunin miðaði að því, að endurreisa efnahagslíf Evrópu eftir stríðið.
Moody's áætlar að heildarríkisskuldir heimsins verði yfir 49 billjónir dala árið 2010. Þar af verða um 75% skuldir ríkissjóða G7 ríkjanna, helstu iðnríkja heims en þau ríki hafa veitt gríðarlegu fé til að halda fjármálakerfi heimsins gangandi.