Auglýsingatekjur dragast saman

mbl.is/KG

Samanlagðar tekjur fjölmiðla af birtingu og flutningi auglýsinga, ásamt tekjum af kostun, námu ríflega 9,8 milljörðum króna á síðasta ári. Auglýsingatekjur miðlanna drógust saman um 5% frá fyrra ári, að sögn Hagstofunnar. Reiknað á meðalverðlagi ársins 2008 rýrnuðu auglýsingatekjurnar um 15%.

Stærstur hluti tekna af auglýsingum á síðasta ári rann til fréttablaða (dagblaða og vikublaða), eða 58%. Ríflega fjórðungur af auglýsingatekjum fjölmiðla rann til sjónvarps. Því næst kom hljóðvarp með 14% og  kvikmyndahús, mynddiskar og myndbönd voru samanlagt með innan við 2% teknanna. Hagstofan segir að þessi skipting auglýsingatekna milli miðla hafi haldist að mestu óbreytt um árabil.

Tölur um auglýsingatekjur fjölmiðla eru fengnar úr árlegri gagnasöfnun Hagstofunnar meðal fjölmiðlafyrirtækja. Tekjur af birtingu auglýsinga á vef eru inni í tölum um auglýsingatekjur fjölmiðla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK