Gengi krónunnar veiktist um 0,5% í dag og er gengisvísitalan 237 stig. Gengi Bandaríkjadals hækkaði talsvert og er dalurinn nú 126 krónur. Evran er 184,17 krónur, pundið 205,30 krónur, danska krónan er 24,744 krónur og japanska jenið er 1,4067 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.