Spá 7,7% verðbólgu í desember

Spáð er 8% lækkun á fatnaði og skóm í janúar …
Spáð er 8% lækkun á fatnaði og skóm í janúar þegar útsölur byrja Reuters

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,6% í desember. Ef spáin gengur eftir lækkar verðbólgan úr 8,6% í 7,7%. Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka. Greining Íslandsbanka spáir töluverðri hækkun vísitölu neysluverðs á fyrsta ársfjórðungi 2010.

Þrátt fyrir að gengi krónu hafi verið nokkuð stöðugt undanfarna mánuði eru enn að koma fram í verðlagi áhrif gengishrunsins frá miðju ári 2008, sér í lagi í þeim vöruliðum sem búa við tiltölulega hægan veltuhraða eða árstíðabundið vöruframboð. Þannig gerum við ráð fyrir að liðir á borð við húsgögn, heimilisbúnað, fatnað og rafeindatæki til heimilisnota hækki um eitt til tvö prósentustig á milli mánaða,  en töluverð verðhækkun hefur verið að koma fram á slíkum innfluttum vörum á síðustu mánuðum.

Margt hefur orðið til að tefja áhrif falls krónu undanfarin misseri á verðlag varanlegra og hálfvaranlegra neysluvara. Snarminnkandi eftirspurn eftir slíkum vörum hefur hægt mikið á veltuhraða þeirra, auk þess sem gera má ráð fyrir að söluaðilar hafi í lengstu lög vænst þess að krónan styrktist að nýju og beðið með að hleypa hærra innkaupsverði að fullu yfir í útsöluverð. Teljum við að vegna ofangreindra þátta sé enn eftir nokkur verðhækkun á ýmsum vöruflokkum vegna gengisfalls krónu," að því er segir í Morgunkorni Íslandsbanka.

Á fyrsta fjórðungi næsta árs má búast við töluverðri hækkun vísitölunnar, samkvæmt Greiningu Íslandsbanka.

„Þar vegur þungt hækkun óbeinna skatta í janúar og mars, sem við teljum að muni í heild hækka vísitöluna um 1,4% á fjórðungnum. Við bætist svo að mati okkar frekari hækkun á þeim liðum sem fjallað er um hér að ofan, sem og gjaldskrárhækkanir sem jafnan má eiga von á um áramót.

Við gerum ráð fyrir að útsöluáhrif verði svipuð á fjórðungnum og verið hefur undanfarin ár. Þannig spáum við að föt og skór muni lækka um 8% að jafnaði í janúar en hækka að nýju um ríflega 7% í febrúar og svo enn frekar í mars. Alls teljum við að VNV muni hækka um 2,8% fram til marsloka miðað við síðustu mælingu í nóvember. Verðbólgan mun því líklega hækka á þessu tímabili og ná hámarki í 9,5% í mars á næsta ári ef spá okkar gengur eftir."

Sjá nánar hér á vef Íslandsbanka

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK