Evrópska kerfið um viðskipti með losunarheimildir á koltvísýringi er þjakað af svindli, að því er kemur fram í tilkynningu frá Europol.
Segir þar að skipulögð glæpasamtök hafi undanfarna 18 mánuði notað viðskipti með losunarheimildir til að græða allt að fimm milljarða evra, andvirði um 900 milljarða króna, með því að nýta sér reglur um skil á virðisaukaskatti.