Farice í vanskilum

Farice-1 ljósleiðarastrengur var tekinn í notkun í janúar 2004.
Farice-1 ljósleiðarastrengur var tekinn í notkun í janúar 2004.

Tekjur Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. á árinu 2009 hafa ekki verið í samræmi við áætlanir félagsins, m.a. vegna þess að uppbygging netþjónabúa og annars iðnaðar sem nýtir flutningsgetu ljósleiðara Eignarhaldsfélagsins Farice til og frá Íslandi hefur dregist. Hefur þetta leitt af sér að félagið hefur ekki náð að halda öllum skuldum þess í skilum. Af þeim sökum hefur Eignarhaldsfélagið Farice að undanförnu unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu á félaginu.

Samið um að fresta greiðslu afborgana

Í þessu skyni hefur félagið m.a. gert samkomulag við kröfuhöfa sem fara með um 98,5% af heildarkröfum á það félag að frátöldum kröfum skuldabréfaeigenda EFAR 09 01, en sá skuldabréfaflokkur er í skilum og er næsti gjalddagi þann 15. apríl 2010, að því er segir í tilkynningu.

Í samkomulaginu við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins Farice felst að kröfuhafar fallast á að félagið þurfi ekki að greiða gjaldfallnar afborganir út samningstímann sem rennur út þann 28. febrúar 2010.

Verður tíminn fram að því nýttur til að útbúa og leggja fyrir aðila samkomulagsins tillögur um fjárhagslega endurskipulagningu félagsins. Unnið er að gerð samskonar samkomulags við kröfuhafa dótturfélags Eignarhaldsfélagsins Farice ehf., Farice hf. Eignarhaldsfélagið Farice ehf. á um 79,9% af heildarhlutafé í Farice hf.

Skulda rúm 20 milljarða króna

Skuldabréfaflokkurinn EFAR 09 01 er að nafnvirði fimm milljarðar króna og er með einfaldri ábyrgð ríkissjóðs. Heildarskuldir Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. á samstæðugrunni nema um 113,8 milljónum evra, rúmir tuttugu milljarðar króna, en þar af eru um 49,2 milljónir evra, 9,2 milljarðar króna í vanskilum. Af því nema heildarskuldir Farice hf. um 25,8 milljónum evra, en þar af eru um 2,8 milljónir evra í vanskilum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK