12 þúsund án atvinnu undir lok árs

Á fjórða ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 12.000 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6,7% vinnuaflsins, samkvæmt mælingum Hagstofu. Atvinnuleysi mældist 7,9% hjá körlum og 5,4% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 16,1%.

Á fjórða ársfjórðungi 2009 var atvinnuleysi 6,6% á höfuðborgarsvæðinu en 7% utan þess, að sögn Hagstofunnar.

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á fjórða ársfjórðungi 2009 höfðu um 1700 manns verið atvinnulausir svo lengi, eða um 14% atvinnulausra, en voru á sama tímabili 2008 um 200 manns.

80,3% atvinnuþátttaka 

Fjöldi starfandi á fjórða ársfjórðungi 2009 var 166.500 manns og fækkaði um 8500 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 178.500 manns sem jafngildir 80,3% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 83,3% og kvenna 77,3%.

Hagstofan segir, að til þeirra sem eru á vinnumarkaði teljist bæði þeir sem eru starfandi og atvinnulausir. Fólk teljist vera starfandi ef það hefur unnið eina klukkustund eða meira í viðmiðunarviku könnunar eða verið fjarverandi frá starfi sem það gegnir að öllu jöfnu.

Á fjórða ársfjórðungi 2008 voru alls 182.400 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 81,5%. Atvinnuþátttaka karla var 85,3% og kvenna 77,4%.

Vinnutími 38,9 stundir á viku

Á fjórða ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 38,9 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 42,9 klst. hjá körlum en 34,5 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 44,6 klst. en 23 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á fjórða ársfjórðungi 2008 var meðalfjöldi vinnustunda 39,3 klst., 43,8 klst. hjá körlum en 34,2 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 45 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 21,7 klst.

Hagtíðindi Hagstofunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK