Nordea hefur sent frá sér
nýja skýrslu um þróun og horfur í efnahagsmálum. Stuttlega er komið inn á
íslensk efnahagsmál í skýrslunni, en þar segir að útflutningur sé ljós í
efnahagslegu rökkri landsmanna. Lágt gengi krónunnar hafi verulega stutt við
útflutningsfyrirtæki. Verð aðalútflutningsvara, sjávarafurða og áls, sé
hækkandi.
Fjárfesting hefur dregist verulega saman á Íslandi sökum almennrar svartsýni og draghalts bankakerfis. Erlendri fjárfestingu sé einnig haldið fjarri með gjaldeyrishöftum. Nordea ráðgerir þannig að vöxtur eftirspurnar í hagkerfinu muni minnka um 20%.
Sérfræðingar Nordea telja að bankakerfið sé nú nánast komið algerlega á legg. Hins vegar hafi óvissa aukist við synjun forsetans á Icesave-lögum. Slíkt geti stefnt samstarfinu við AGS í hættu, en lánafyrirgreiðsla sjóðsins er að mati sérfræðinga Nordea meginforsenda endurreisnar á Íslandi.
Í greiningu bankans segir að enn sé talsvert ójafnvægi á hinni stóru hnattrænu, mynd efnahagsmála. Kína sé þannig með hátt sparnaðarhlutfall og mikinn viðskiptaafgang. Þannig sé landið að éta upp hlutdeild Evrópusambandslanda og Bandaríkjanna á alþjóðlegum mörkuðum.