Skráð viðskiptavild á bókum Sjóvár er um 14,4 milljarðar króna, en eigið fé fyrirtækisins er um 16,6 milljarðar króna. Því er ljóst að um það bil 86% eiginfjár félagsins eru í formi óefnislegra eigna. Þetta kemur fram í útboðsgögnum fyrir Sjóvá, en fyrirtækjasvið Íslandsbanka annast sölu fyrirtækisins. Frestur til að skila inn óskuldbindandi tilboðum rennur út 2.febrúar næstkomandi.
Stærð efnahagsreiknings Sjóvár er 42 milljarðar, en þar af er verðbréfaeign tæplega 20 milljarðar. Af þeirri upphæð eru 15,9 milljarðar stofnhlutafjárframlag sem sett var inn í félagið um mitt síðasta ár fyrir atbeina íslenska ríkisins.
Nánar er fjallað um efnahagsreikning Sjóvar í Morgunblaðinu í dag.