Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur borist 12 óskuldbindandi tilboð í hlutafé Sjóvár Almennra trygginga hf. Í flestum tilvikum er boðið í allt hlutafé félagsins.Þeim sex tilboðsgjöfum sem áttu hæstu óskuldbindandi tilboðin, sem jafnframt teljast hafa fullnægjandi fjárhagslega burði, verður gefinn kostur á áframhaldandi þátttöku í söluferlinu og veittur aðgangur að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins.
Af þeim sex sem boðin verður áframhaldandi þátttaka í ferlinu eru þrír erlendir aðilar.
Tilboðin voru opnuð á þriðjudag í viðurvist Sigurðar Páls Haukssonar, löggilts endurskoðenda, sem var tilnefndur sem óháður matsaðili.