Bréf Össurar hafa hækkað um 9,92% í morgun í viðskiptum í kauphöllinni í Kaupmannahöfn og er gengi bréfanna nú skráð 7,20 danskar krónur. Fyrirtækið birti ársuppgjör í morgun þar sem fram kom að hagnaður eftir skatta nam 2,9 milljörðum króna.
Bréf Össurar voru skráð í Kaupmannahöfn í fyrra. Á þessu ári hefur gengi þeirra hækkað um 25,22%.