Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir janúar 2010 var útflutningur 42,2 milljarðar króna og innflutningur 32,1 milljarður króna. Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpan 10,1 milljarð króna.
Afgangur hefur verið af vöruskiptum í hverjum mánuði frá því í október 2008. Á síðasta ári nam afgangurinn 87,2 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 8,9 milljarða á sama gengi.