Verð á hráolíu hækkaði í rafrænum viðskiptum í Asíu í nótt og morgun þrátt fyrir lækkun á Wall Street í gærkvöldi. Verð á hráolíu til afhendingar í mars hækkaði um 27 sent í 73,41 dal tunnan á NYMEX markaðnum. Brent Norðursjávarolía hækkaði um 13 sent og er 72,26 dalir tunnan.