Stutt er þar til ný matvöruverslun, Sparó, opnar dyr sínar fyrir viðskiptavinum. Talsmaður verslunarinnar sagði í samtali við Morgunblaðið að búið væri að ganga frá samningum um vöruinnflutning við Bergendahlsgruppen, stóra sænska verslanakeðju.
Sparó mun hafa bandaríska vöruhúsaklúbba eins og Costco Wholesale og PriceSmart að fyrirmynd að einhverju marki en enn er óvíst hvernig útfærslan verður nákvæmlega.
Sjá nánar í Morgunblaðinu í dag.