Skuldatryggingaálagið á íslensk ríkisskuldabréf til fimm ára hefur farið minnkandi að undanförnu eftir að hafa farið í 675 punkta við upphaf þessa mánaðar. Álagið var ríflega 570 punktar í gær. Í samanburði má nefna að skuldatryggingaálagið á Lettland nemur nú um 530 punktum.