Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,15% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,33% frá janúar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 7,3% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 11,0%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,3% sem jafngildir 5,4% verðbólgu á ári (8,2% fyrir vísitöluna án húsnæðis), samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.
Verð á fatnaði og skóm hækkaði um 3,9%
Er þetta meiri verðbólga heldur en greiningardeildir höfðu spáð en spár voru almennt á bilinu 0,7-0,8%.
Vetrarútsölum er að ljúka og hækkaði verð á húsgögnum,
heimilistækjum o.fl. um 4,8% (0,37%). Verð á fötum og skóm hækkaði um
3,9% (vísitöluáhrif 0,22%).