Engin viðskipti voru með gjaldeyri á millibankamarkaði í dag en gengisvísitala krónunnar er 230,90 krónur. Pundið er komið niður í 196,65 krónur, evran er 174,30 krónur, danska krónan er 23,42 krónur og Bandaríkjadalur er 128,90 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.