Gengi krónunnar lækkaði um 0,2% í dag og er gengisvísitalan 230,5 stig. Engin viðskipti hafa verið undanfarna daga með gjaldeyri á millibankamarkaði. Gengi evrunnar er 174,60 krónur, Bandaríkjadalur er 127,95 krónur, pundið er 194,80 krónur og danska krónan er 23,46 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.