Helgi Magnússon var endurkjörinn formaður Samtaka iðnaðarins í formannskjöri. Hann fékk 79,54% greiddra atkvæða en þrír aðrir hlutu atkvæði. 18,55% skiluðu auðu.
Vilborg Einarsdóttir, Sigsteinn P. Grétarssson og Bolli Árnason eru nýir stjórnarmenn Samtaka iðnaðarins. Fyrir í stjórn Samtakanna eru Aðalheiður Héðinsdóttir, Andri Þór Guðmundsson, Loftur Árnason og Tómas Már Sigurðsson.