Skilanefnd Kaupþings segir að virði eigna bankans hafi aukist um 214 milljarða á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri kröfuhafaskýrslu. Þar kemur fram að eitt helsta markmið skilanefndarinnar hafi verið að auka virði eigna Kaupþings meðal annars með virkri eignastýringu.