Spænskur dómstóll dæmdi bankann Bankinter til þess að greiða 87 viðskiptavinum bætur vegna þess skaða sem þeir hlutu í kjölfar falls Lehman Brothers og Landsbanka Íslands.
Að sögn Dow Jones-fréttaveitunnar kemur í úrskurðinum að Bankinter hefði átt að upplýsa viðskiptavini sína um þær hættur sem steðjuðu að Lehman og Landsbankanum á sínum tíma.
Viðskiptavinir bankans lögðu fram kæruna í júní í fyrra og vildu þeir fá ríflega 10 milljónir evra í skaðabætur frá bankanum. Dómurinn dæmdi bankann til þess að greiða skaðabæturnar að fullu eða til hluta eftir tilvikum.