Skipti í viðræðum við kröfuhafa

Skipti.
Skipti.

Skipti hf., móðurfélag Símans, eiga í viðræðum við lánardrottna félagsins sem miða að því að Skipti greiði lán félagsins hraðar upp en gert er ráð fyrir í lánasamningum, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Segja lausafjárstöðuna sterka

„Lausafjárstaða Skipta er mjög sterk, um áramótin átti félagið yfir 20 milljarða króna í handbæru fé. Skuldir félagsins hafa hins vegar hækkað með falli íslensku krónunnar þar sem hluti skulda félagsins er í erlendri mynt.

Skipti hafði gert gjaldmiðlaskiptasamninga við íslenska banka til að verja félagið gegn falli krónunnar en þeir samningar hafa ekki verið uppfylltir af hálfu bankanna. Við hækkun skulda var það mat lánveitenda að skilmálar sem eru í lánasamningum hefðu raskast og óskuðu lánveitendur í kjölfarið eftir því að Skipti greiddi lánin hraðar niður með handbæru fé félagsins. Það skal áréttað að öll lán Skipta eru í skilum. Stefnt er að því að niðurstaða fáist í viðræðurnar á næstu vikum," segir í tilkynningu frá félaginu.

Viðskiptablaðið segir skuldir nema tæpum 100 milljörðum

Í Viðskiptablaðinu í dag kemur fram að Skipti skuldaði 96,7 milljarða króna um mitt ár 2009. Á sama tíma voru eignir félagsins sagðar 131 milljarður króna. Þar af nam viðskiptavild, sem er óefnisleg eign, 69,5 milljörðum króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK