Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegsins jókst milli áranna 2007 og 2008. Í fiskveiðum og -vinnslu hækkaði þetta hlutfall úr 19½% í 27½%, í fiskveiðum úr 21½% árið 2007 í 25% af tekjum árið 2008 og í fiskvinnslu úr 7% í 17%.
Þetta kemur fram í nýju riti frá Hagstofunni þar sem birtar eru niðurstöður athugana Hagstofunnar um fiskveiðar og fiskvinnslu
fyrir árið 2008.
Hreinn hagnaður í sjávarútvegi árið 2008 nam 19% samanborið við
10½% hagnað árið áður. Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu og á
rekstri loðnuskipa á árinu 2008.
Heildareignir sjávarútvegs í
árslok 2008 voru 504 milljarðar króna, heildarskuldir 564 milljarður og
eigið fé því neikvætt um 60 milljarða.