Launavísitala í febrúar hækkaði um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 3,6% samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.
Vísitala kaupmáttar launa í febrúar lækkaði hins vegar um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa lækkað um 3,4%.