Hagnaður hjá N1

Hagnaður af rekstri N1 hf. var 277,4 milljónir króna eftir skatta á síðasta ári samanborið við 1,1 milljarðs króna tap árið áður. 

Rekstrartekjur félagsins námu 40 milljörðum króna á árinu samanborið við 43,7 milljarða árið 2008.  Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 1,6 milljarða króna árið 2009 en voru neikvæðir um 3,37 milljarða árið áður.

Í tilkynningu segir, að rekstrarhorfur árið 2010 séu áfram erfiðar vegna óstöðugleika í efnahagsmálum. Kjarnastarfsemi félagsins hafi gengið vel miðað við aðstæður það sem af er árinu en áfram megi búast við erfiðu rekstrarumhverfi.

Tilkynning N1

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK