Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í mars hækkaði um 0,55% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 1,05% frá febrúar.
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 12,0%. Er hækkunin í takt við væntingar markaðarins. Í febrúar mældist tólf mánaða verðbólga 7,3% og í janúar var hún 6,6%.
Vetrarútsölum
er víðast lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 7,1% (vísitöluáhrif
0,41%). Verð á bensíni og díselolíu hækkaði um 4,1% (0,22%).
Kostnaður
vegna eigin húsnæðis lækkaði um 2,0% (-0,25%). Þar af voru -0,2% áhrif
af lækkun markaðsverðs og 0,05% vegna lækkunar raunvaxta.
Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala
neysluverðs hækkað um 1,4% sem jafngildir 5,7% verðbólgu á ári (10,1%
fyrir vísitöluna án húsnæðis).
Vísitala neysluverðs samkvæmt útreikningi í mars 2010, sem er 362,9 stig gildir til verðtryggingar í maí 2010. Vísitala fyrir eldri fjárskuldbindingar, sem breytast eftir lánskjaravísitölu, er 7.165 stig fyrir maí 2010, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.
Hér er hægt að skoða undirflokka vísitölunnar