Baugur seldi Landsbankanum og Glitni hlutabréf í Iceland í nokkrum skömmtum á árinu 2008. Fyrstu viðskiptin áttu sér stað í mars, en þá seldi Baugur 8% hlut í Iceland til Landsbankans fyrir um það bil 60 milljónir punda.
Landsbankinn var strax á þessum tíma í nokkrum vandræðum vegna Baugs, en áhætta gagnvart fyrirtækinu dansaði í kringum hið lögboðna hámark samkvæmt reglum Fjármálaeftirlitsins. Þær reglur kveða á um að áhætta gagnvart einstökum viðskiptavini megi ekki nema meira en 25% af eigin fé.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru þær 240 milljónir punda sem Baugur fékk fyrir samtals 23% hlut í Iceland notaðar til greiðslu á öðrum skuldum. Baugur fékk hins vegar kauprétt á hlutunum í Iceland sem seldir voru til bankanna tveggja. Þeir kaupréttarsamningar voru síðan veðsettir vegna annarra lána. Fram hefur komið í fréttum að skilanefnd Glitnis ráði yfir 10% hlut í Iceland, en 2,5% sem út af standa leysti Glitnir til sín vegna aðskilins veðkalls.