Áætlað er að tap Icelandair Group vegna takmarkaðrar flugumferðar til Evrópu nemi samtals um 100 milljónum króna á dag.
Í tilkynningu frá félaginu segir að undanfarna daga hafi starfsmenn Icelandair Group unnið að því að lágmarka röskun fyrir viðskiptavini samstæðunnar vegna eldsumbrota í Eyjafjallajökli. Ástandið snertir flest fyrirtæki innan samstæðu Icelandair Group en þó sérstakleg þau sem eru í alþjóðlegum flugrekstri, þ.e. Icelandair, Icelandair Cargo og Bluebird auk þess sem áhrifin eru nokkur á Iceland Travel og Vita.
Áætlanir gera ráð fyrir að tap samstæðunnar vegna takmarkaðrar flugumferðar til Evrópu nemi samtals um 100 milljónum króna á dag. Þrátt fyrir talsverða röskun á flugi til Evrópu hefur Icelandair bætt við flugferðum þegar færi hefur gefist til að tryggja að viðskiptavinir verði fyrir sem minnstum óþægindum vegna eldgossins. Flogið var til Glasgow og Þrándheims með á annað þúsund farþega og nú í morgun hófst flug til fleiri borga á Norðurlöndunum. Jafnframt hefur fraktflutningum verið haldið uppi eins og mögulegt hefur verið.
Miðað við nýjustu vindaspár er gert ráð fyrir að Keflavíkurflugvöllur verði opinn næstu daga. Engin röskun hefur orðið á flugi Icelandair til Bandaríkjanna og áætlanir gera ráð fyrir að Icelandair muni áfram halda uppi loftbrú á milli Evrópu og Bandaríkjanna í vikunni sem er að hefjast.
„Icelandair Group leggur mikið kapp á að veita viðskiptavinum sem besta þjónustu. Vill félagið koma þökkum á framfæri við viðskiptamenn félagsins sem hafa sýnt skilning á þeim krefjandi aðstæðum sem nú eru ríkjandi,“ segir í tilkynningu frá Björgólfi Jóhannssyni forstjóra.