7,6% atvinnuleysi

Á fyrsta ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 13.600 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,6% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,4% hjá körlum og 5,7% hjá konum. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 16,4%.

Að sögn Hagstofunnar, sem heldur utan um þessar upplýsingar, fjölgaði atvinnulausum um 900 manns frá fyrsta ársfjórðungi 2009 til sama tímabils 2010.  Þá mældist atvinnuleysi 8,6% á höfuðborgarsvæðinu en 5,9% utan þess.

Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Á fyrsta ársfjórðungi 2009 höfðu um 2.500 manns verið atvinnulausir svo lengi, eða um 18,1% atvinnulausra, en voru á sama tímabili 2009 um 600 manns. 

Starfandi fólki fækkar

Fjöldi starfandi á fyrsta ársfjórðungi 2010 var 163.900 manns og fækkaði um 1.600 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 177.500 manns sem jafngildir 79,7% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 83,4% og kvenna 76%. 

Á fyrsta ársfjórðungi 2009 voru alls 178.200 á vinnumarkaði og atvinnuþátttaka mældist 79,5%. Atvinnuþátttaka karla var 83,3% og kvenna 75,5%.

Vinnutími 39 stundir

Á fyrsta ársfjórðungi 2010 var meðalfjöldi vinnustunda 39 klst. hjá þeim sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni, 43,3 klst. hjá körlum en 34,2 klst. hjá konum. Meðalfjöldi vinnustunda hjá þeim sem voru í fullu starfi var 44,8 klst. en 22,4 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi.

Á fyrsta ársfjórðungi 2009 var meðalfjöldi vinnustunda 38,9 klst., 43,3 klst. hjá körlum en 34 klst. hjá konum. Þeir sem voru í fullu starfi unnu 44,7 klst. að jafnaði en þeir sem voru í hlutastarfi unnu að jafnaði 21,4 klst.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka