Í mars 2010 voru skráð 164 ný einkahlutafélög samanborið við 231 einkahlutafélög í mars 2009, sem jafngildir rúmlega 29% fækkun milli ára þá voru 106 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 100 fyrirtæki í mars 2009, sem jafngildir 6% fjölgun milli ára samkvæmt skráningu Hagstofunnar.
Einnig voru skráð 45 samlagsfélög í mars. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er því 469 fyrstu þrjá mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um tæplega 32% frá sama tímabili árið 2009 þegar 690 ný einkahlutafélög voru skráð.
Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum en flest samlagsfélög voru skráð í sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi.
Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum og í bálknum byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 er fjöldi gjaldþrota 292
sem er tæplega 12% aukning frá sama tímabili árið 2009 þegar 261
fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.