Afar rólegt var á millibankamarkaði í dag en gengisvísitala krónunnar er 227,60 stig. Evran er 170 krónur, Bandaríkjadalur er 128,90 krónur, pundið 196,52 krónur og danska krónan er 22,84 krónur, samkvæmt upplýsingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.