Spá 0,75% lækkun stýrivaxta

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands mbl.is/Ómar Óskarsson

Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti bankans um 0,75 prósentur á morgun. Við þetta lækka vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana úr 7,5% í 6,75% og vextir á lánum gegn veði til sjö daga úr 9,0% í 8,25%.

Í síðustu fundargerð peningastefnunefndarinnar og yfirlýsingu nefndarinnar eftir fundinn segir að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðni eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar.

„Þrátt fyrir nokkurn óróa á erlendum mörkuðum hefur gengi krónunnar verið nokkuð stöðugt frá síðustu vaxtaákvörðun bankans 17. mars síðastliðinn. Veltan á millibankamarkaðinum með gjaldeyri hefur verið mjög lítil og hefur Seðlabankinn ekki beitt inngripum á millibankamarkaðinum síðan í nóvember í fyrra.

Í apríl hjaðnaði verðbólgan úr 8,5% í 8,3% og er frekari hjöðnun verðbólgunnar væntanleg á næstu mánuðum. Spáum við því að verðbólgan verði komin niður í verðbólgumarkmið Seðlabankans í lok næsta árs og mun fyrr, þ.e. snemma á næsta ári, ef miðað er við verðbólgu án áhrifa af óbeinum sköttum," segir í stýrivaxtaspá Greiningar Íslandsbanka.

Stýrivextir í 6% í árslok

„Reikna má fastlega með því nú að peningastefnunefndin endurtaki yfirlýsingu sína um að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðnar eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar.

Má í því ljósi, og með hliðsjón af erlendri fjármögnun, vænta þess að nefndin lækki vexti bankans nokkuð hratt á næstunni, en þó með þeim skorðum sem áætlun um afnám gjaldeyrishafta fyrir lok efnahagsáætlunarinnar í ágúst 2011 setur vaxtastefnunni.

Spáum við því að nefndin verði komin með veðlánavexti bankans, sem nú eru 9,0%, niður í 6,0% í lok árs en á árinu eru eftir sex vaxtaákvörðunardagar," segir í spá Greiningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK