Sjávarafurðir fyrir 200 milljarða

Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða á árinu 2009 nam rúmum 200 milljörðum króna og jókst um 10,9% frá fyrra ári. Framleiðslan mæld á föstu verði dróst hins vegar saman um 7,6% að sögn Hagstofunnar.

Fluttar voru út sjávarafurðir að verðmæti 208,6 milljarðar króna og jókst verðmæti þeirra milli ára um 21,8% en dróst saman í magni um 4%. Árið 2009 voru flutt út 669 þúsund tonn samanborið við 697 þúsund tonn árið áður. Útflutt afurðaverðmæti allra flokka aflategunda jókst frá fyrra ári.

Hagstofan segir, að líkt og undanfarin ár hafi frystar afurðir skilað um helmingi útflutningsverðmætis. Af einstökum afurðum vó verðmæti blautverkaðs saltfisks úr þorski mest, 16,4 milljarða króna.

Af heildarútflutningi sjávarafurða fóru 79% til Evrópska efnahagssvæðisins, 6,8% til Asíu og 4,9% til Norður-Ameríku.

Útflutningur og útflutningsframleiðsla sjávarafurða 2009 -

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK