Vísitala neysluverðs hækkaði um 8,3% frá apríl 2009 til jafnlengdar í ár. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs án húsnæðis um 11,3%. Verðbólgan hefur hjaðnað á tímabilinu og verið minni en 10% síðan í september 2009.
Hagstofan hefur gefið út sérstakt hefti Hagtíðinda um vísitölu
neysluverðs frá apríl 2009 til apríl 2010. Í því eru birtar töflur um
þróun hennar síðustu tólf mánuði og vikið að árlegri endurnýjun á grunni
vísitölunnar í mars 2010. Einnig er fjallað um fastskattavísitölu
neysluverðs og nýja aðferð við útreikning á undirvísitölu kaupverðs
nýrra bíla.
Vísitala
neysluverðs apríl 2009-2010