Boðið að kaupa lóðir með

Smáralind
Smáralind mbl.is/Ásdís Ásgeirsdóttir

Fasteignafélag Íslands ehf., eigandi verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar, hefur ákveðið að gefa fjárfestum sem áhuga hafa á að kaupa verslunarmiðstöðina, kost á því að kaupa einnig nærliggjandi lóðir í eigu félagsins.

Lóðirnar eru sunnan Smáralindar við Hagasmára og Hæðasmára. Þessar lóðir verða hvorki seldar sérstaklega sem heild né heldur stakar, heldur er ætlunin að gefa kaupanda verslunarmiðstöðvarinnar tækifæri á að eignast þær jafnhliða kaupum á Smáralindinni, að því er segir í tilkynningu frá Landsbankanum.

Sala Smáralindarinnar var fyrst auglýst 27. apríl. Þann dag hófst formlegt söluferli sem fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast í umboði eiganda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK